Heiðskýr heimsendir

Fyrsta dag eftir heimsendi

skein sól.

Golan bar með blóð

sem lak yfir mig.

Beinagrindur dönsuðu

á ökrunum.

Í fyrsta sinn

leið mér vel.